11.11.2011

Arion banki býður blönd­uð íbúða­lán

Viðskiptavinum Arion banka bjóðast nú blönduð íbúðalán. Hægt er að blanda saman óverðtryggðu og verðtryggðu láni í þeim hlutföllum sem best henta hverjum og einum. Þannig geta viðskiptavinir stillt af greiðslubyrði íbúðalána sinna eftir því sem hentar þeirra aðstæðum.

Greiðslubyrði verðtryggðra og óverðtryggðra lána er ólík. Hún er yfirleitt lægri á verðtryggðum lánum, sérstaklega á fyrri hluta lánstímans. Hún er hins vegar hærri á óverðtryggðum lánum, en þar er eignamyndun hraðari og greiðslubyrðin lækkar eftir því sem líður á lánstímann. Með blönduðu láni er því hægt að jafna sveiflur afborgana og stilla lánið af miðað við greiðslugetu.

Blönduð lán koma þannig til móts við þarfir þeirra sem vilja ekki hafa of háa greiðslubyrði en vilja á sama tíma takmarka höfuðstólshækkun vegna verðtryggingar.

Meðfylgjandi eru dæmi um þrjár leiðir sem hægt er að velja við skiptingu lánsins:

  • Leið 1: 75% óverðtryggt / 25% verðtryggt

  • Leið 2: 50% óverðtryggt / 50% verðtryggt

  • Leið 3: 25% óverðtryggt / 75% verðtryggt

Hver og einn getur hins vegar stillt hlutföllum milli óverðtryggða og verðtryggða lánsins upp eins og hentar best.

Vextir óverðtryggða hlutans eru 6,45%, fastir til 5 ára, en vextir þess verðtryggða eru breytilegir frá 4,3% til 5,4% eftir því hvert hlutfall lánsins er og veðhlutfall.

Lánin eru til allt að 40 ára en hámarksveðhlutfall þeirra er allt að 80% af markaðsvirði eignar. Lántakendur þurfa að standast greiðslumat bankans.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira