31.03.2011

Arion banki býður BM Vallá til sölu

Ákveðið hefur verið að bjóða til sölu allt hlutafé í BM Vallá, en fyrirtækið er í eigu Eignabjargs, dótturfélags Arion banka.

  • Upphaf söluferlis á B.M. Vallá ehf. verður tilkynnt formlega í dag.

  • Frestur til að skila óskuldbindandi tilboðum í félagið er til 2. maí. Í kjölfarið munu valdir fjárfestar fá aðgang að frekari upplýsingum um félagið áður en óskað verður eftir bindandi tilboðum og gengið til endanlegra samninga um kaup og sölu.

  • Söluferlið er opið öllum fjárfestum sem uppfylla skilyrði um viðeigandi þekkingu og fjárhagslegan styrk, en gert er ráð fyrir að allt hlutafé í félaginu verði selt í einu lagi.

  • Áhugasömum aðilum er bent á að hafa samband við Fyrirtækjaráðgjöf Arion banka sem hefur umsjón með söluferlinu.

Bankinn tók yfir rekstur fyrirtækisins árið 2010 og hefur það gengið í gegnum róttæka endurskipulagningu. Kostnaðaruppbygging fyrirtækisins hefur verið löguð að núverandi efnahagsástandi en framleiðslugeta þess getur engu að síður annað meðalári án þess að til mikilla fjárfestinga þurfi að koma. BM Vallá er eitt stærsta framleiðslufyrirtæki innan byggingariðnaðarins á Íslandi og er vörumerki þess sterkt. Fyrirtækið starfar á sviði steypu-, hellu-, eininga- og múrframleiðslu sem og vikurvinnslu. Þó að félagið hafi gengið í gegnum umfangsmiklar skipulagsbreytingar hefur verið staðið vörð um mikla sérfræðiþekkingu fyrirtækisins. BM Vallá er því í stakk búið til að vera áfram í fararbroddi á markaði og viðhalda sterkri ímynd varðandi vöru- og þjónustugæði. Á undanförnu ári hefur verið lögð áhersla á vöruþróun sem mun styrkja stöðu félagsins á Íslandi en þó sérstaklega útflutning þess.

Söluferlið

Boðið er til sölu allt hlutafé í B.M. Vallá ehf. og er gert ráð fyrir að það verði selt í einu lagi. Söluferlið er opið öllum áhugasömum fjárfestum sem að mati seljanda geta sýnt fram á að hafa viðeigandi þekkingu og til þess bæran fjárhagslegan styrk, eða aðgang að a.m.k. 500 milljónum króna í auðseljanlegum eignum. Seljandi áskilur sér þó rétt til þess að takmarka aðgang að söluferlinu, meðal annars ef fyrir hendi eru lagalegar hindranir á því að viðkomandi fjárfestir eignist ráðandi hlut í félaginu, svo sem vegna samkeppnisreglna.

Fjárfestar sem óska eftir að taka þátt í söluferlinu eru beðnir að hafa samband við Fyrirtækjaráðgjöf Arion banka. Skulu þeir leggja fram trúnaðaryfirlýsingu á þar til gerðu formi. Sölugögn verða afhent þátttakendum frá og með mánudeginum 11. apríl næstkomandi. Fyrirtækjaráðgjöf Arion banka mun taka við óskuldbindandi tilboðum til kl. 12.00 mánudaginn 2. maí næstkomandi. Tilboðum skal skila á þar til gerðu formi. Í kjölfarið verða tilboðin metin og völdum fjárfestum boðin áframhaldandi þátttaka í söluferlinu. Munu þeir fjárfestar fá aðgang að frekari upplýsingum um rekstur og fjárhag fyrirtækisins áður en óskað verður eftir bindandi tilboðum og gengið til endanlegra samninga um kaup og sölu á félaginu. Seljandi áskilur sér rétt til að i) gera breytingar á skilmálum og/eða viðmiðum söluferlisins og/eða ii) ganga til samninga við hvaða tilboðsgjafa sem hann kýs eða hafna öllum.

Frekari upplýsingar

Upplýsingar um söluferlið má nálgast hjá Fyrirtækjaráðgjöf Arion banka í síma 444 6000 eða með því að senda tölvupóst á fyrirtaekjaradgjof.BMV2011@arionbanki.is.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira