01.09.2011

Arion banki býður hag­stæð óverð­tryggð íbúða­lán

Fastir vextir til fimm ára

Arion banki mun frá 15. september bjóða viðskiptavinum sínum óverðtryggð íbúðalán til 25 eða 40 ára. Lánin eru með föstum vöxtum til fimm ára. Á fimm ára fresti eru vextirnir endurskoðaðir og taka mið af markaðsvöxtum sem í gildi eru á hverjum tíma. Viðskiptavinir geta einnig valið aðra kosti ef þau óverðtryggðu kjör sem þá bjóðast eru óhagstæð.

Um tvennskonar óverðtryggð lán er að ræða. Annars vegar lán sem nema allt að 60% veðhlutfalli fasteignar, bera 6,45% fasta vexti í fimm ár og eru til 25 eða 40 ára. Hins vegar viðbótarlán sem nema frá 60% til 80% veðhlutfalli fasteignar, bera 7,55% fasta vexti i fimm ár og eru til allt að 25 ára. Til að eiga kost á láni þurfa viðskiptavinir að standast greiðslumat bankans.

Hér er á ferðinni nýjung á íslenskum fjármálamarkaði þar sem binding hagstæðra, óverðtryggðra vaxta til fimm ára hefur ekki áður boðist lántakendum. Þar að auki geta viðskiptavinir að fimm árum liðnum valið á milli annarra kosta, svo sem að breyta láninu í verðtryggt lán eða greiða það upp án sérstaks uppgreiðslugjalds.

Með því að bjóða upp á fasta vexti til fimm ára og úrval valkosta að þeim tíma liðnum er komið til móts við sjónarmiðið um aukið fjárhagslegt öryggi lántakenda. Breytilegum vöxtum fylgir ákveðin áhætta fyrir lántakendur þar sem greiðslubyrði getur hækkað umtalsvert á skömmum tíma með hækkandi vaxtastigi. Fimm ára binding vaxta takmarkar þannig áhættu lántaka varðandi þróun vaxta á því tímabili.

Óverðtryggð lán eru góður kostur fyrir þá sem ráða við þyngri greiðslubyrði en fylgir hefðbundnum verðtryggðum lánum. Einn helsti kostur þeirra umfram verðtryggð lán er að eignamyndun verður umtalsvert hraðari með óverðtryggðum lánum en með verðtryggðum lánum.

Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka:

„Við teljum þetta mikilvægt skref í þróun þeirra fjármögnunarkosta sem standa íbúðarkaupendum til boða og erum ánægð að geta riðið á vaðið með þessa nýjung. Við höfum fundið fyrir áhuga hjá viðskiptavinum okkar á að til staðar séu raunhæfir fjármögnunarkostir í stað hinna hefðbundnu verðtryggðu kosta. Með því að binda vexti í 5 ár – vexti sem eru hagstæðir fyrir lántakandann – verða óverðtryggð lán að raunverulegum valkosti fyrir húsnæðiskaupendur. Við erum sannfærð um að viðskiptavinir okkar muni skoða þennan valkost vandlega þegar kemur að því að fjármagna kaup á húsnæði eða við endurfjármögnun á eldri lánum.“

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira