27.08.2010

Arion banki býður leik­hús­kort fyrir lægra verð

Arion banki býður viðskiptavinum í vildarþjónustu bankans að kaupa leikhúskort að sýningum Þjóðleikhússins. Þar er að hefjast fjölskrúðugt leikár og geta áhorfendur á öllum aldri fundið eitthvað við sitt hæfi. Tilboðið gildir til 6. september.

Hægt er að velja um áskriftarkort eða opið kort á aðeins 7.900 kr.

  • Áskriftarkort gildir á fjórar sýningar á Stóra sviðinu þar sem hægt er að ganga að sínu sæti vísu í salnum.

  • Opið kort gildir á fjórar sýningar Þjóðleikhússins að eigin vali auk þess sem hægt er að nýta það til að bjóða gestum með sér.

Vildarviðskiptavinir hafa nú þegar fengið tilboðið sent í tölvupósti.

Vildarviðskiptavinir sem ekki fengu tilboðið sent geta hringt í Þjónustuver Arion banka 444-7000 eða sent tölvupóst á arionbanki@arionbanki.is og fengið tilboðsmiðann sendan rafrænt á opnunartíma Þjónustuvers.

Greiða þarf leikhúskortið með debet- eða kreditkorti frá Arion banka.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira