22.09.2011
Arion banki býður nýja þjónustu á fyrirtækjasviði - Faktoring
Arion banki býður nú nýja þjónustu á fyrirtækjasviði bankans, Faktoring, sem mun opna ný tækifæri í fjármögnun fyrirtækja.
Starfsemi Faktoring snýst um að fjármagna viðskiptakröfur og við það fléttast viðbótarþjónusta svo sem innheimta og áhættustýring. Veigamikill þáttur í starfseminni er miðlun greiðslufallstrygginga.
Faktoring á rætur að rekja til þess að bankinn keypti rekstur SPRON factoring í maí síðastliðnum. Starfsemin sem hefur verið í fyrrum húsnæði SPRON factoring að Suðurlandsbraut 12 mun flytjast í höfðustöðvar Arion banka að Borgartúni 19 í næstu viku.
Brúar bilið á milli lánsviðskipta og staðgreiðslu
Faktoring er fyrst og fremst hagkvæm fjármögnunaraðferð sem leiðir til skilvirkari þjónustu og aukins öryggis auk þess sem betri yfirsýn fæst yfir viðskiptamannabókhaldið. Þjónustan gefur fyrirtækjum kost á fjármögnun í gegnum útistandandi reikninga.
Hrönn Greipsdóttir, forstöðumaður Faktoring á fyrirtækjasviði Arion banka:
„Þjónusta af þessu tagi er algeng erlendis en hefur ekki náð að ryðja sér verulega til rúms á Íslandi, samt hentar hún útflutningsfyrirtækjum afar vel. Þetta er viðbótarleið til fjármögnunar sem breytir hefðbundnum lánsviðskiptum í staðgreiðslu vegna þess að bankinn lánar út á viðskiptakröfur gegn veði í kröfunum sjálfum“.
Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka:
„Við leggjum mikið upp úr því að veita viðskiptavinum okkar fjölbreytta fjármálaþjónustu. Með Faktoring bætir bankinn mikilvægum þætti við þjónustuframboð sitt gagnvart fyrirtækjum sem stunda reikningsviðskipti við önnur fyrirtæki. Aukið þjónustuframboð er í takt við þá stefnu bankans að veita alhliða bankaþjónustu, við verðum þess áskynja að það er mikil eftirspurn fyrir hendi og erum við með þessu að mæta þörfum viðskiptavina okkar“.
Rafrænn aðgangur viðskiptavina að upplýsingum, uppgjörum og greiðslum, verður í gegnum vef Arion banka.