05.01.2012

Arion banki býður Penn­ann til sölu

Ákveðið hefur verið að bjóða til sölu allt hlutafé í Pennanum á Íslandi ehf. sem er í eigu Eignabjargs ehf., dótturfélags Arion banka hf.

Penninn er leiðandi fyrirtæki á sviði skrifstofuhúsgagna, skrifstofuvara, gjafavöru og afþreyingar s.s. bóka, tímarita, myndbanda og geisladiska bæði fyrir einstaklinga og fyrirtæki. Verslanir Pennans eru Eymundsson, Penninn, Grifill og Islandia. Hjá fyrirtækinu starfa um 300 manns og er velta félagsins um 5 ma.kr.

Söluferlið

Allt hlutafé Pennans á Íslandi ehf. er boðið til sölu í einu lagi. Söluferlið er aðeins opið hæfum fjárfestum, sbr. 9. tl. 43. gr. laga um verðbréfaviðskipti nr. 108/2007, sem að mati seljanda geta sýnt fram á til þess bæran fjárhagslegan styrk eða aðgang að a.m.k. 300 milljónum króna í auðseljanlegum eignum. Seljandi áskilur sér þó rétt til þess að takmarka aðgang að söluferlinu, meðal annars ef fyrir hendi eru lagalegar hindranir á því að viðkomandi fjárfestir eignist ráðandi hlut í félaginu, svo sem vegna samkeppnisreglna.

Fjárfestar sem óska eftir að taka þátt í söluferlinu eru beðnir um að hafa samband við fyrirtækjaráðgjöf Arion banka hf. Skulu þeir leggja fram trúnaðaryfirlýsingu á þar til gerðu formi ásamt því að leggja fram nauðsynlegar upplýsingar og gögn sem staðfesta að ofangreind skilyrði séu uppfyllt. Í kjölfarið fá fjárfestar afhendar frekari upplýsingar um tímasetningar og skilmála söluferlisins auk upplýsinga um fjárhag og starfsemi félagsins.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira