06.05.2011

Arion banki býður viðskipta­vin­um hag­stæð íbúða­lán

Viðskiptavinum Arion banka bjóðast ný og hagstæð íbúðalán frá og með mánudeginum 9. maí. Lánin bera fasta vexti út lánstímann sem eru betri en þau vaxtakjör sem nú bjóðast á íslenskum bankamarkaði.

Um er að ræða verðtryggð íbúðalán. Annars vegar lán sem nema allt að 60% veðhlutfalli fasteignar, bera 4,30% fasta vexti og eru til 25 eða 40 ára. Hins vegar viðbótarlán sem nema frá 60% til 80% veðhlutfalli fasteignar, bera 5,40% fasta vexti og eru til allt að 25 ára. Til að eiga kost á láni þurfa viðskiptavinir að standast greiðslumat bankans.

Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka:
„Það er hlutverk fjármálastofnana að bjóða viðskiptavinum sínum fjölbreytta fjármálaþjónustu. Lán til íbúðakaupa eru liður í því. Síðan Arion banki var stofnaður hefur höfuðáhersla í starfi bankans verið á úrlausn skuldamála, en nú sér fyrir enda þeirrar vinnu. Við teljum mikilvægt að bjóða viðskiptavinum okkar upp á þennan nýja fjármögnunarkost og viljum gera það á ábyrgan hátt. Þannig kalla þessi nýju lán á að minnsta kosti 20% eiginfjárframlag lántakans og að hann standist ítarlegt greiðslumat bankans. Vaxtakjör lánanna upp að 60% veðsetningarhlutfalli eru vissulega hagstæð en lán umfram 60% veðsetningarhlutfall bera hærri vexti og geta að hámarki verið til 25 ára. Með þessu fyrirkomulagi er skuldsetningu lántaka sett skynsamleg mörk, en vextir lánanna eru hagstæðir og með þessu er Arion banki að svara kalli viðskiptavina um fjölbreyttari fjármögnunarkosti.“

Nánar um íbúðalánin

Íbúðalán I - allt að 60% veðhlutfall

  • Fastir vextir út lánstímann 4,30%

  • Lánstími 25 eða 40 ár

  • Verðtryggt

  • 1. veðréttur skilyrði

  • Lántökugjald 1%

  • Lántakendur þurfa að standast greiðslumat

  • 2% uppgreiðslugjald

Íbúðalán II - 60-80% veðhlutfall

  • Eingöngu lánað sem viðbót við Íbúðalán I

  • Fastir vextir út lánstímann 5,40%

  • Lánstími allt að 25 ár

  • Verðtryggt

  • 2. veðréttur á eftir Íbúðaláni I

  • Lántökugjald 1%

  • Lántakendur þurfa að standast greiðslumat

  • Ekkert uppgreiðslugjald

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira