09.10.2012

Arion banki dreif­ir endur­skins­merkj­um

Arion banki stendur fyrir dreifingu á endurskinsmerkjum nú þegar hausta tekur og skammdegið fellur á. Eins og undanfarin haust þá hafa endurskinsmerki verið send til allra sex ára barna á landinu og munu þau berast börnunum á næstu dögum. Að auki verða endurskinsmerkin öllum aðgengileg í útibúum Arion banka, á meðan birgðir endast.

Það er staðreynd að ökumenn sjá vegfarendur með endurskinsmerki fimm sinnum fyrr. Það getur því borgað sig að taka sér smástund til að festa endurskinsmerkið í fötin. Endurskinsmerki Arion banka uppfylla nauðsynlega staðla sem gilda um endurskinsmerki.

Hægt verður að nálgast endurskinsmerki í öllum útibúum Arion banka, á meðan birgðir endast en þeir sem búa fjarri útibúum bankans og geta ekki sótt endurskinsmerki geta sent tölvupóst á netfangið arionbanki@arionbanki.is og fengið merkin send til sín.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira