17.03.2010

Arion banki efl­ir fjármála­læsi al­mennings

Með samstarfs- og styrktarsamningi við Stofnun um fjármálalæsi við Háskólann í Reykjavík vill Arion banki stuðla að betra fjármálalæsi almennings. Samningurinn felur í sér að stofnunin kemur framvegis til með að leiða fræðslufundi Arion banka um fjármál.

Arion banki leggur áherslu á að veita viðskiptavinum haldgóðar upplýsingar, fræðslu og örugga leiðsögn í nýju efnahagsumhverfi. Bankinn hefur undanfarið verið með fyrirlestra og fræðslu undir yfirskriftinni FJÁRmál. Þegar hafa um 300 viðskiptavinir bankans sótt fræðslufundina og á annað hundrað manns hafa skráð sig á fræðslufundi sem eru á döfinni.

Breki Karlsson, forstöðumaður Stofnunar um fjármálalæsi, verður hér eftir leiðandi í mótun fyrirlestra og námskeiða sem FJÁRmál Arion banka standa fyrir. Betra fjármálalæsi stuðlar að gagnrýnni og upplýstri umræðu og ýtir undir fyrirhyggju í fjármálum. Þannig er ekki aðeins lagður grunnur að meiri lífsgæðum, heldur einnig stuðlað að ábyrgara og heilbrigðara samfélagi.

Við undirskrift samstarfssamningsins sagði Breki Karlsson, forstöðumaður Stofnunar um fjármálalæsi að mikil þörf væri á almennri fræðslu um fjármál í samfélaginu. „Það er gleðiefni að stofna til samstarfs af þessum toga og við vonumst eftir mikilli þátttöku á námskeiðum og fyrirlestrum hjá okkur á næstu mánuðum og misserum.“

Nánari upplýsingar um FJÁRmál og Stofnun um fjármálalæsi

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira