01.11.2011
Arion banki er aðalbakhjarl Bleiku slaufunnar
Bleika slaufan, fjáröflunar- og árvekniátak Krabbameinsfélags Íslands, hefur staðið yfir allan októbermánuð. Viðtökurnar voru sem fyrr afar góðar og seldust um 47.000 slaufur og er það gríðarlega góður árangur.
Eins og kunnugt er fékk Krabbameinsfélagið konur frá Suður-Afríku til að perla slaufuna, og komu þær frá þorpum sem kallast Zulufadder. Flestar konurnar eru ömmur og annast þær margar 12-14 börn hver, því börnin hafa misst foreldra sína úr alnæmi. Í raun hefur heil kynslóð á þessu svæði horfið sökum sjúkdómsins.
Með kaupum á Bleiku slaufunni í ár var því bæði verið að styrkja Krabbameinsfélag Íslands sem og Zulufadder þorpin.
Arion banki þakkar landsmönnum fyrir stuðninginn við Krabbameinsfélag Íslands en þess má geta að á síðasta ári tók félagið á móti 25.000 konum í krabbameinsleit. Starf Krabbameinsfélagsins snertir líf margra Íslendinga á einhvern hátt og er það Arion banka bæði ljúft og skylt að styðja við bakið á metnaðarfullu starfi þess.