29.05.2015

Arion banki er aðal­bak­hjarl Ný­sköp­unar­keppni grunn­skóla­nem­enda

Vinnusmiðja Nýsköpunarkeppni grunnskólanemenda (NKG 2015) fer fram þessa dagana. Í dag fer hún fram í Háskólanum í Reykjavík (HR) og á morgun laugardaginn 30. maí í Arion banka Borgartúni. Lokahóf verður sunnudaginn 31. maí kl. 13.00, í Sólinni í HR.

Um það bil 1975 hugmyndir bárust frá yfir 3000 hugmyndasmiðum – víða um land. Hugmyndir þátttakenda í vinnusmiðju eru fjölbreyttar og leysa þarfir og vandamál í daglegu lífi. Þar má nefna garnhaldara, barnabauk, endurvinnanlegt dross, blýanta – gorma – yddara, „sick“ tölvuleik, ýmis öpp og fleiri skapandi hugmyndir.

Tilgangur vinnusmiðju er að hver þátttakandi fái tækifæri til að þjálfa sig í ferlinu – frá hugmynd að vöru til verðmæta. Nemendur útfæra hugmyndir sínar með teikningum, smíðum, textíl, forritun, gerð viðskiptamódela og þjálfun framsögu, undir dyggri leiðsögn fulltrúa frá NKG, SKEMA, JCI, Einkaleyfastofu, Arion banka, Háskólans í Reykjavík og Háskóla Íslands.

Lokahóf fer fram sunnudaginn 31. maí kl. 13.00 í Sólinni (HR). Þar tilkynnir verndari NKG, forseti Íslands, Hr. Ólafur Ragnar Grímsson verðlaunahafa. Verðlaun eru í boði Nýherja, Skema, HÍ, Nýsköpunarmiðstöð Íslands og IKEA. Illugi Gunnarsson, Mennta- og menningarmálaráðherra afhendir farandbikar til nýsköpunarskóla ársins í flokki minni og stærri grunnskóla. Hugmyndasmiðir stíga enn fremur á stokk og segja frá hugmyndum sínum og fleira skemmtilegt.

Tilgangur NKG er að gera börnum grein fyrir sköpunargáfu sinni (5., 6., og 7. bekkur) og þroska hana í gegnum vinnu með eigin hugmyndir. Virkja sköpunarkraft barna í landinu. Efla og þroska frumkvæði þátttakenda í NKG og styrkja þannig sjálfsmynd þeirra. Efla nýsköpunarstarf í grunnskólum og vekja athygli á hugviti barna í skólum og atvinnulífi.

Eigandi Nýsköpunarkeppni grunnskólanemenda er Mennta- og menningarmálaráðuneytið en framkvæmd keppninnar er í höndum NKG verkefnalausna. Arion banki er aðalbakhjarl en aðrir bakhjarlar eru HR, HÍ, SI og IKEA. Samstarfsaðilar eru Skema, Nýherji, Nýsköpunarmiðstöð Íslands, Einkaleyfastofa, JCI, Samband íslenskra sveitarfélaga, Finnupp og Markaðsráð kindakjöts.

Nánari upplýsingar eru á vef vinnusmiðjunnar og Facebook síðu.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira