01.03.2012

Arion banki er aðalstyrktaraðili Mottumars

Arion banki hefur stutt vel við bakið á Krabbameinsfélagi Íslands um áraraðir. Bankinn er einn af stærstu styrktaraðilum átaksins Karlmenn og krabbamein eða Mottumars sem Krabbameinsfélagið stendur fyrir dagana 1. - 31. mars. Í Mottumars eru karlmenn hvattir til að safna mottu og fjármunum í leiðinni en þeim er varið í rannsóknir, forvarnir, stuðning og ýmis önnur verkefni sem tengjast baráttunni við krabbamein í körlum.

Karlkyns starfsmenn eru hvattir til að taka þátt í Mottumars og safna yfirvaraskeggi meðan á átakinu stendur. Síðustu tvö ár hefur bankinn unnið liðakeppni Mottumars og hafa starfsmenn nú þegar stofnað lið á vefsíðu átaksins til að safna áheitum og sýna samstöðu. Hægt er að heita á einstaklinga og lið, auk þess að fá nánari upplýsingar um átakið á vef Krabbameinsfélagsins.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira