08.09.2010
Arion banki er bakhjarl ungliðahóps Krafts, Ljóssins og SKB
Í dag undirrituðu Ljósið endurhæfingar og stuðningsmiðstöð, Kraftur stuðningsfélag fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna (SKB) samning um formlega samvinnu veturinn 2010-2011. Félögin ætla að bjóða upp á sameiginlega vetrardagskrá fyrir fólk á aldrinum 18-29 ára sem hefur greinst með krabbamein og aðstandendur þess. Til að verkefni af þessu tagi geti orðið að veruleika þarf fjárhagslegan stuðning og verður Arion banki bakhjarl verkefnisins fyrsta misserið.
Hópurinn mun hittast aðra hverja viku á fimmtudögum í vetur og gera sér dagamun. Þetta er tilvalið tækifæri til að hitta hresst og kátt fólk og eiga með því skemmtilega kvöldstund.
Rafn Haraldur Rafnsson hefur verið ráðinn umsjónarmaður hópsins. Rafn starfar á geðsviði Landspítalans við endurhæfingu og er hann íþróttafræðingur að mennt.
Fundirnir í vetur munu fara fram í húsakynnum félaganna eftir þörfum. SKB er til húsa að Hlíðarsmára 14 og Kraftur er til húsa í Skógarhlíð 8 í Ráðgjafaþjónustu Krabbameinsfélags Íslands.
Fyrsti fundur vetrar fer fram fimmtudaginn 9. september kl. 19:30-21.30 í Ljósinu að Langholtsvegi 43. Þar verður dagskrá vetrarins kynnt og hópurinn hristur saman. Ingólfur Þórarinsson, oftast nefndur Ingó Veðurguð, kemur í heimsókn og tekur nokkur lög í lok kvölds.
Léttar veitingar í boði. Verið hjartanlega velkomin.