11.03.2014
Arion banki er einn aðalstyrktaraðila Mottumars
Um árabil hefur Arion banki stutt vel við bakið á Krabbameinsfélagi Íslands. Bankinn er einn af stærstu styrktaraðilum átaksins Karlmenn og krabbamein eða Mottumars sem Krabbameinsfélagið stendur fyrir í mars.
Í Mottumars eru karlmenn hvattir til að safna mottu og fjármunum í leiðinni en þeim er varið í rannsóknir, forvarnir, stuðning og ýmis önnur verkefni sem tengjast baráttunni við krabbamein í körlum.
Hægt er að heita á einstaklinga og lið á vefsíðu Mottumars og þar má að auki finna nánari upplýsingar um átakið. Nýbreytni í átakinu í ár er svokallaður netkór á vefsíðu Mottumars. Þar getur fólk sungið lagið Hraustir menn til stuðnings liði eða keppanda í Mottumars en Arion banki styrkir hvern söng með 1.000 kr. framlagi til Mottumars.