25.06.2010

Arion banki er einn af bak­hjörl­um Íþrótta­sam­bands fatl­aðra

Arion banki og Íþróttasamband fatlaðra undirrituðu samstarfssamning í dag, 25. júní, sem felur í sér að Arion banki verður einn af aðalbakhjörlum sambandsins. Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka og Sveinn Áki Lúðvíksson, formaður Íþróttasambands fatlaðra skrifuðu undir styrktarsamninginn í dag sem gildir fram yfir Ólympíumótið árið 2012. Allt frá stofnun Íþróttasambands fatlaðra 1979 hefur bankinn verið einn stærsti styrktaraðili íþrótta fatlaðra hér á landi.

Í tilefni af undirritun samningsins sagði Sveinn Áki Lúðvíksson, formaður Íþróttasambands fatlaðra að mikil ánægja væri með stuðning Arion banka: ,,Við Íslendingar höfum eignast fjölda ólympíu- og heimsmeistara í íþróttum fatlaðra og stuðningurinn nú hvetur okkur til áframhaldandi afreka.“

Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka sagði við undirritun samningsins að það væri heiður að fá tækifæri til að taka þátt í að efla íþróttir fatlaðra hér á landi: ,,Við teljum afar mikilvægt að halda áfram þessu góða samstarfi með Íþróttasambandi fatlaðra og óskum þeim velfarnaðar í því starfi sem framundan er.“

Höskuldur H. Ólafsson bankastjóri Arion banka og Sveinn Áki Lúðvíksson formaður Íþróttasambands fatlaðra undirrituðu styrktar- og samstarfssamninginn.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira