24.05.2013

Arion banki eyk­ur úr­val óverð­tryggðra íbúða­lána

Arion banki býður nú viðskiptavinum tvær nýjar tegundir óverðtryggðra íbúðalána til fasteignakaupa eða endurfjármögnunar. Um er að ræða viðbót við þá fjölbreyttu kosti óverðtryggðra og verðtryggðra lána sem þegar standa viðskiptavinum til boða.

Annars vegar er um að ræða óverðtryggð íbúðalán byggð á stýrivöxtum Seðlabanka Íslands að viðbættu 0,95% álagi. Slíkt lán bæri í dag 6,95% breytilega vexti sem breytast eftir stýrivaxtaákvörðunum Seðlabankans. Um er að ræða nýjung á íslenskum lánamarkaði, þar sem kjör íbúðalána hafa ekki áður verið tengd vöxtum Seðlabankans með svo beinum hætti. Um þessa tegund lána gildir, eins og um önnur óverðtryggð íbúðalán, að þau henta þeim sem sækjast eftir hraðari eignamyndun og hafa rúma greiðslugetu.

Hins vegar er um að ræða óverðtryggð íbúðalán með föstum vöxtum til þriggja ára. Um er að ræða sambærileg lán og þau óverðtryggðu lán sem bankinn reið á vaðið með á íslenskum íbúðalánamarkaði í september 2011 sem bera fasta vexti til fimm ára.

Í dag bjóðast því viðskiptavinum Arion banka þrjár gerðir óverðtryggðra lána; með breytilegum vöxtum, föstum vöxtum til þriggja ára og föstum vöxtum til fimm ára. Á undanförnum misserum hafa fjölmargir lántakendur hjá bankanum kosið að blanda saman óverðtryggðum og verðtryggðum lánum, en bankinn býður áfram úrval verðtryggðra lána.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira