31.12.2013
Arion banki fær lán Dróma og Hildu afhent á næstu vikum
Þann 30. desember tókust samningar um uppgjör á milli Dróma, Eignasafns Seðlabanka Íslands og Arion banka. Samningarnir fela í sér að Arion banki eignast einstaklingslán Dróma og Hildu. Það er fagnaðarefni að fyrrum viðskiptavinir SPRON sem hafa haft sín innlán hjá Arion banka á undanförnum árum munu nú einnig fá íbúðalán sín flutt til bankans.
Arion banki mun þó ekki fá umrædd lán afhent fyrr að nokkrum vikum liðnum.