10.04.2012

Arion banki fjármagnar þýskt félag á sviði full­vinnslu og sölu sjáv­ar­af­urða

Arion banki hefur lokið samningum um fjármögnun þýska félagsins TSP – The Seafood Processor Gmbh og dótturfélags þess, TST – The Seafood Traders Gmbh. Móðurfélag TSP er Leuchtturm Beteiligungs- und Holding Germany AG.

Um er að ræða nýtt framleiðslu- og sölufyrirtæki á sviði sjávarafurða. Fjármagnið verður annars vegar notað í uppbyggingu nýrrar og fullkominnar verksmiðju sem framleiða mun vörur á neytendamarkað og hins vegar afurðalán til að mæta sveiflum í rekstri. Félagið verður fyrst og fremst með starfsemi í Þýskalandi og meðal viðskiptavina verða stærstu smásölukeðjur Þýskalands.

Verksmiðjan verður búin fyrsta flokks tækni í vinnslu sjávarafurða og með henni stefnir félagið á að verða leiðandi í framleiðni og rekstrarhagkvæmni í Evrópu. Framleiðsla hófst 1. mars 2012.

Félagið er að hluta í eigu lykilstjórnenda og Íslendinga en í meirihlutaeigu japanska sjávarútvegsrisans Nippon Suisan (Nissui), annars stærsta sjávarútvegsfyrirtækis heims, sem skráð er á hlutabréfamarkaðinum í Tokýó. Forstjóri hins nýja fyrirtækis er Finnbogi A. Baldvinsson.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira