06.07.2015

Arion banki gef­ur út skulda­bréf í norsk­um krón­um

Þriðjudaginn 29. júní lauk Arion banki skuldabréfaútgáfu í norskum krónum. Samtals voru gefin út skuldabréf fyrir 500 milljónir norskra króna til fimm ára. Skuldabréfin bera fljótandi NIBOR vexti að viðbættu 2,95% vaxtaálagi. Arion banki gerði á sama tíma skiptasamning sem þýðir að hluti vaxta og höfuðstóls er skipt í evrur. Vaxtakjör í evrum eru fljótandi EURIBOR + 2,74%. Umframeftirspurn var eftir skuldabréfunum. Skuldabréfin voru seld til fjárfesta í Noregi, Svíþjóð, Finnlandi, Danmörku og á meginlandi Evrópu. Pareto Securities sá um sölu skuldbréfanna.

Samhliða skuldabréfaútgáfunni keypti Arion banki til baka NOK 260 milljónir af skuldabréfaútgáfu frá árinu 2013. Arion banki hafði áður keypt 59 milljónir, og hefur bankinn samtals keypt NOK 319 milljónir tilbaka af NOK 500 milljón króna útgáfu frá árinu 2013.

Arion banki hefur einnig í dag greitt um 10 milljarða króna fyrir gjalddaga af víkjandi láni frá ríkissjóði. Þetta er í annað sinn á þessu ári sem bankinn greiðir fyrirframgreiðslu af víkjandi láni, og hefur samtals greitt um 20 milljarða af um 30 milljarða víkjandi láni. Lánið var veitt í upphafi árs 2010 í tengslum við endurfjármögnun bankans.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira