30.03.2011

Arion banki heit­ir á starfs­menn og styrk­ir átakið Karl­menn og krabba­mein

Arion banki hefur stutt vel við bakið á Krabbameinsfélagi Íslands um áraraðir. Bankinn er einn af stærstu styrktaraðilum átaksins Karlmenn og krabbamein eða Mottumars sem Krabbameinsfélagið stendur fyrir dagana 1. – 31. mars.

Í fyrra tók starfsfólk Arion banka liðakeppnina með áhlaupi og sigraði með því að safna dágóðri upphæð og flottum mottum. Markmið okkar í ár er að endurtaka leikinn með grósku í skeggvexti og fjáröflun. Hefur Arion banki heitið einni milljón króna á starfsmenn bankanssem taka þátt í liðakeppninni í ár.

Bankinn hvetur önnur fyrirtæki til að sýna mottusafnandi starfsmönnum sínum og átakinu Karlmenn og krabbamein stuðning í verki með því að heita á þá á vefsíðu átaksins www.mottumars.is og styrkja þannig verðugt málefni.

Lið Arion banka í liðakeppni Mottumars 2011

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira