21.01.2013
Arion banki hf. lýkur skuldabréfaútboði
Arion banki hf. lauk á föstudag, þann 18. janúar, þriðja útboði bankans á sértryggðum skuldabréfum sem eru óverðtryggð. Alls voru seld skuldabréf til fagfjárfesta fyrir 1.820 milljónir að nafnvirði í skuldabréfaflokknum Arion CB 15. Stærð flokksins eftir stækkun er 4.340 milljónir.
Stefnt er að því að skuldabréfin verði tekin til viðskipta á NASDAQ OMX Íslandi í janúar. Nánari upplýsingar um skráninguna verða kynntar síðar. Skuldabréfin bera 6,50% óverðtryggða vexti og eru á lokagjalddaga árið 2015. Ávöxtunarkrafa er 6,50%.