23.03.2012

Arion banki hlýt­ur heiður­sviður­kenningu Stúd­enta­ráðs

Arion banki hefur hlotið heiðursviðurkenningu Stúdentaráðs Háskóla Íslands fyrir að hafa ráðið til sín flesta stúdenta yfir árið 2011. „Arion banki stóð lang fremst í þessum málum og er að mati Stúdentaráðs mikil fyrirmynd fyrirtækja þegar kemur að ráðningu í sumarstörfin í ár,“ segir Sara Sigurðardóttir, formaður Stúdentaráðs. Alls réði Arion banki 158 stúdenta til sín árið 2011, þar af var 131 sumarstarfsmaður. Næsta fyrirtæki var þó nokkuð á eftir Arion banka en fyrirtækið sem vermdi annað sætið réði til sín 102 stúdenta árið 2011.

Jónas Hvannberg, starfsmannstjóri Arion banka, tók við heiðursviðurkenningunni en athöfnin fór fram á Háskólatorgi að viðstöddum aðilum vinnumarkaðarins ásamt fjölmörgum stúdentum sem brátt munu hefja leit að sumarstörfum. „Arion banki hefur ráðið fjölmarga háskólanema í gegnum tíðina. Það hefur reynst okkur mjög vel að ráða sumarstarfsmenn eða fólk í hlutastörf á veturnar sem margir verða síðan framtíðarstarfsmenn þegar námi er lokið ,“ segir Jónas Hvannberg, starfsmannastjóri Arion banka.

Í byrjun árs 2011 ákvað Stúdentaráð, með aðstoð frá Samtökum atvinnulífsins, að ráðast í svo kallað sumarvinnuátak sem sneri að atvinnutækifærum stúdenta. Átakið snerist um að kanna hvaða fyrirtæki myndi ráða til sín flesta stúdenta yfir árið. Hörður Vilberg, verkefnastjóri SA, staðfesti á athöfninni að Samtök atvinnulífsins muni aðstoða við átak Stúdentaráðs fyrir komandi sumar á sama hátt og gert var í fyrra. „Það reynist því miður sífellt erfiðara fyrir námsmenn að finna sér vinnu á sumrin og samkeppnin er afar mikil. Átak á borð við þetta mun vonandi virka sem hvatning til fyrirtækja og stofnana til að ráða til sín stúdenta auk þess að hafa róandi áhrif á námsmenn í landinu þar sem flestallir vita hversu stressandi það getur verið að sigla inn í prófatíð án þess að vera komnir með vinnu,“ segir Sara.

Sara Sigurðardóttir formaður Stúdentaráðs, Jónas Hvannberg starfsmannastjóri Arion banka, Hörður Vilberg
verkefnastjóri Samtaka atvinnulífsins og Runólfur Ágústson formaður stjórnar Atvinnuleysistryggingarsjóðs.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira