15.06.2015

Arion banki hlýt­ur Jafn­launa­vott­un VR

Arion banki hefur fengið Jafnlaunavottun VR og er þar með fyrstur íslenskra banka til að hljóta þessa vottun. Bankinn hefur þar með fengið staðfestingu á því að búið sé að kerfisbinda launaákvarðanir og að hann sé með jafnlaunakerfi samkvæmt kröfum ÍST 85:2012. Kerfið mun tryggja að starfsfólki sem vinnur sömu eða jafnverðmæt störf sé ekki mismunað í launum.

„Það er afskaplega ánægjulegt en ekki síður mikilvægt þegar stór banki á við Arion banka bætist í hóp jafnlaunavottaðra fyrirtækja og fagna ég því,“ segir Ólafía B. Rafnsdóttir, formaður VR. „Við vonum að þessi vottun verði öðrum bönkum og fjármálastofnunum hvatning til þess að standa Arion banka jafnfætis í þessum efnum en Jafnlaunavottun VR tekur nú til 24 fyrirtækja og stofnana á íslenskum vinnumarkaði.“

Ólafía sagði jafnframt að vottunin sé markviss leið fyrir atvinnurekendur til að uppfylla kröfur jafnlaunastaðals Staðlaráðs Íslands og sé auk þess tæki fyrir fyrirtæki og stofnanir til að meta stöðu kynjanna innan eigin veggja með viðurkenndri aðferðafræði og samræmdum viðmiðum.

,,Við erum mjög stolt að þeim árangri sem við höfum náð í jafnréttismálum innan bankans og Jafnlaunavottun VR er stór áfangi í þeim efnum,“ segir Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka. „Jafnréttismálin snerta okkur öll og það skiptir gríðarlega miklu máli að allir, bæði konur og karlar, sitji við sama borð þegar kemur að launaákvörðunum. Það að innleiða staðlað gæðakerfi hjálpar okkur að viðhalda þeim árangri sem við höfum þegar náð og jafnframt gera enn betur.“

Jafnlaunavottun VR felur í sér ítarlega úttekt á launum starfsfólks, starfaflokkun og öðrum þáttum sem hafa áhrif á kjör. Öll fyrirtæki og stofnanir á íslenskum vinnumarkaði geta sótt um Jafnlaunavottun VR, óháð stéttarfélagsaðild starfsmanna sinna. Sjá ítarlegri umfjöllun um Jafnlaunavottun VR hér.

Á myndinni, sem tekin var við afhendingu Jafnalaunavottunar VR til Arion banka, eru Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka og Ólafía B. Rafnsdóttir formaður VR. Þess má geta að listaverkið sem er í bakgrunni er eftir listakonuna Ingunni Fjólu Ingþórsdóttur en verkið er hluti af sýningunni Fletir sem nú stendur yfir í Arion banka.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira