08.02.2012

Arion banki í sam­starf við trygginga­félagið Euler Her­mes

Í lok síðasta árs undirritaði Arion banki samstarfssamning við hið virta evrópska tryggingafélag Euler Hermes um greiðslufallstryggingar. Með tilkomu samningsins getur bankinn boðið viðskiptavinum sínum greiðslufallstryggingar á mjög góðum kjörum.

Euler Hermes er stærsta tryggingafélagið í Evrópu á sviði greiðslufallstrygginga, með um 34% markaðshlutdeild, en þar starfa um 6.200 starfsmenn og viðskiptavinir eru um 52.000. Standard & Poor‘s gaf fyrirtækinu einkunnina AA- og stærsti eigandi þess er Allianz með hátt í 70% eignarhlut. Við undirritun samningsins hefur Ísland nú bæst í hóp þeirra ríflega 50 landa sem selja tryggingar Euler Hermes.

Ferlið gengur þannig fyrir sig að íslenskt fyrirtæki sækir um greiðslufallstryggingu hjá Faktoringu Arion banka til að tryggja sig gagnvart greiðslufalli erlendra greiðenda. Tryggingafélagið metur greiðandann og gefur út tryggingu sem endurspeglar mat þess á greiðsluhæfi viðkomandi og hvort hann sé líklegur á að lenda í greiðslufalli. Þannig fær sá sem sækir um greiðslufallstryggingu mat á viðskiptavinum sínum en slíkt mat getur bæði verið dýrt í vinnslu og tímafrekt. Komi til vanskila tekur tryggingafélagið að sér innheimtu kröfunnar en íslenska fyrirtækið fær kröfuna greidda í gegnum Faktoringu Arion banka. Erlend innheimta getur verið flókin, tímafrek og kostnaðarsöm en innheimtuþóknun tryggingafélagsins er einungis brot af því sem hefðbundin innheimta myndi kosta. Faktoring Arion Banka sér um allt utanumhald og tilkynningar til tryggingafélagsins sem og fjármögnun sé samningur um hana fyrir hendi.

„Viðskiptakröfur eru í mörgum tilvikum einn af stærstu og mikilvægustu veltufjármunum félaga og því er eðlilegt að þær séu tryggðar rétt eins og fasteign eða framleiðslutæki. Greiðslufallstryggingar eru mikið notaðar í útflutningi og hefur eftirspurn eftir þeim aukist í núverandi efnahagsástandi þar sem traust hefur minnkað og menn séð að jafnvel traustustu fyrirtæki geta fallið. Eins eru greiðslufallstryggingar mikið notaðar sé um nýja viðskiptamenn að ræða þar sem greiðslusagan er lítt þekkt,“ segir Hrönn Greipsdóttir, forstöðumaður Faktoring Arion banka.

Ef þú hefur áhuga á að kynna þér greiðslufallstryggingu Arion banka betur hafðu þá samband í síma 444-7000 eða með því að senda fyrirspurn á netfangið faktoring@arionbanki.is.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira