31.05.2013

Arion banki kaup­ir fasteignina að Borgar­túni 18

Arion banki hefur fest kaup á fasteigninni Borgartúni 18 sem áður hýsti Sparisjóð vélstjóra og BYR. Seljandi er Íslandsbanki sem auglýsti eignina til sölu í apríl síðastliðnum.

Höfuðstöðvar Arion banka eru við Borgartún 19 en þar hefur ekki verið starfrækt útibú á vegum bankans. Með kaupunum nú hefur bankinn tryggt sér afar hentugt húsnæði fyrir rekstur útibús sem og aðra starfsemi á vegum bankans. Stefnt er að opnun nýs útibús Arion banka að Borgartúni 18 á fyrri hluta næsta árs.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira