19.05.2011
Arion banki kaupir SPRON Factoring
Gengið hefur verið frá kaupum Arion banka á starfsemi SPRON Factoring. Kaupin eru gerð með fyrirvara um samþykki eftirlitsstofnanna.
SPRON Factoring er sérhæft félag á sviði kröfufjármögnunar. Samhliða kröfufjármögnuninni fer fram þjónusta tengd áhættustýringu kröfusafna, viðskiptamannabókhaldi og innheimtu. Annar veigamikill þáttur í starfsemi félagsins er sala á greiðslufallstryggingum í samvinnu við erlend tryggingarfélög sérhæfð á þessu sviði.
Við kaup Arion banka á SPRON Factoring mun afar mikilvægur þáttur bætast við þjónustuframboð Arion banka. Starfsemin verður fyrst um sinn áfram í núverandi húsnæði við Suðurlandsbraut 12. Allir starfsmenn SPRON Factoring verða starfsmenn Arion banka og Hrönn Greipsdóttir núverandi framkvæmdastjóri SPRON Factoring mun áfram veita starfseminni forstöðu.
Kröfuþjónusta hentar útflutningsfyrirtækjum vel og eru kerfi SPRON Factoring sérstaklega hönnuð með þarfir þeirra í huga. Þá verður bankinn einnig vel í stakk búinn til að þjónusta stærri kröfusöfn á innanlandsmarkaði. Rafrænn aðgangur viðskiptavina að upplýsingum, uppgjörum og greiðslum, verður í gegnum vef bankans.
Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka
„Við leggjum mikið upp úr því að veita viðskiptavinum okkar fjölbreytta fjármálaþjónustu. Með kaupum á SPRON Factoring, sem er sterkt og vel rekið félag, bætir bankinn mikilvægum þætti við þjónustuframboð sitt gagnvart fyrirtækjum sem stunda reikningsviðskipti við önnur fyrirtæki. Með starfsmönnum SPRON Factoring kemur sérþekking á sviði kröfuþjónustu sem kemur viðskiptavinum Arion banka til góða.“