04.12.2009

Arion banki kynnir lausnir fyrir ein­stak­linga og heimili

Lækkun höfuðstóls og afborgana af íbúðalánum hjá Arion banka

Starfsfólk Arion banka hefur að undanförnu unnið og útfært nýjar lausnir fyrir viðskiptavini bankans sem ganga heldur lengra en hafa verið kynntar hingað til. Arion banki býður viðskipavinum upp á nokkrar leiðir, sem taka aukið mið af misjafnri skuldastöðu þeirra og því hvort um er að ræða erlend eða innlend húsnæðislán. Höfuðstóll erlendra íbúðalána getur lækkað um allt að 30 prósent samkvæmt hinum nýju skuldaúrræðum bankans. Ekki verður krafist uppboða vegna vangoldinna húsnæðislána til loka árins 2010, óháð því hvort um er að ræða innlend eða erlend lán.

Arion banki býður viðskiptavinum sínum, sem eru með erlend húsnæðislán, tvo valkosti:

  • Að lækka höfuðstól lánsins um 30 prósent og breyta því í fasteignalán í íslenskum krónum til allt að 40 ára. Hægt er að fá lánið með 6,0% óverðtryggðum vöxtum til næstu þriggja ára. Að þeim tíma liðnum færist vaxtaprósentan yfir í bestu fáanlegu íbúðalánavexti sem bjóðast hjá bankanum. Eftir þessa leiðréttingu lánsins verður staða þess sú sama og hún var þann 29. september 2008. Það er mat Arion banka að þessi leið henti vel þar sem veðhlutfallið er undir 155% af verðmæti húseignarinnar.

  • Viðskiptavinum með erlend húsnæðislán stendur líka til boða að Arion banki lækki höfuðstól lánsins í 110% af markaðsvirði eignarinnar. Láninu er þá breytt í íslenskt fasteignalán, óverðtryggt eða verðtryggt. Lánið ber breytilega markaðsvexti verðtryggðra lána, sem eru nú 5,4%, eða breytilega markaðsvexti óverðtryggðra lána, sem eru nú 9,75 prósent. Að auki býður bankinn sértæka skuldaaðlögun sé greiðslugeta minni en sem nemur hinu 110 prósenta veðhlutfalli. Virði húseignarinnar miðast við núverandi markaðsvirði, sem þó getur aldrei verið lægra en fasteignamat frá 1. desember 2009. Það er mat Arion banka henti vel þar sem veðhlutfallið er yfir 155% af verðmæti eignarinnar.

Einungis er unnt að velja aðra af ofangreindum leiðum. Báðar leiðirnar gera hins vegar ráð fyrir allt að 30 til 40 prósenta lækkunum á höfuðstól núverandi lána.

Þeir sem eru með innlend íbúðalán hjá Arion banka gefst kostur á lækkun höfuðstóls í 110% af markaðsvirði húseignarinnar. Vaxtakjör lánsins haldast óbreytt og þar sem áfram verður um sama lán að ræða er ekki um neinn þinglýsingarkostnað að ræða. Auk lækkunar á höfuðstól lána býður bankinn viðskiptavinum með innlend íbúðalán upp á sértæka skuldaaðlögun. Þá miðast virði eigna við núverandi markaðsvirði, sem þó getur aldrei verið lægra en fasteignamat frá 1. desember 2009.

Fjórði valkosturinn sem Arion banki býður viðskiptavinum sínum er að greiða eingöngu vexti af fasteignalánum sínum í allt að eitt ár. Mánaðarlegar greiðslur geta þá lækkað um 10 til 25 prósent, allt eftir lengd lánstímans.

Þær leiðir sem kynntar eru hér að ofan standa viðskiptavinum Arion banka boða frá mánudeginum 7. desember til 1. júlí 2010. Hægt er að sækja um lánabreytingar óháð því hvort viðskiptavinirnir þáðu eða afþökkuðu greiðslujöfnun á grundvelli laga ríkisstjórnarinnar vegna greiðslubyrði húsnæðislána fyrir heimili, einstaklinga og fyrirtæki.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira