15.05.2012

Arion banki lækk­ar vexti

Arion banki hefur lækkað vexti á verðtryggðum íbúðalánum bankans og jafnframt fjölgað valkostum er kemur að verðtryggðum íbúðalánum.

Verðtryggð íbúðalán Arion banka með föstum vöxtum út lánstímann bera nú 4,20% vexti. Breyting þessi hefur ekki áhrif á fasta vexti núverandi lána.

Nú geta viðskiptavinir Arion banka jafnframt tekið verðtryggð íbúðalán með föstum vöxtum til fimm ára. Lánin bera 3,85% vexti og að fimm árum liðnum er hægt að velja um aðra valkosti sem í boði eru hjá bankanum eða framlengja lánið á þeim kjörum sem þá bjóðast.

Einnig býður Arion banki nú verðtryggð íbúðalán með breytilegum vöxtum og eru þeir nú 3,75%.

Arion banki býður áfram óverðtryggð lán með föstum vöxtum til fimm ára. Viðskiptavinum bankans býðst einnig að blanda saman verðtryggðum og óverðtryggðum íbúðalánum. Breytingarnar nú eru liður í stefnu bankans að bjóða upp á fjölbreyttar leiðir í fjármögnun fyrir viðskiptavini bankans.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira