11.02.2010
Arion banki lækkar vexti á óverðtryggðum inn- og útlánum frá og með 11.febrúar 2010
Arion banki lækkar yfirdráttarvexti frá og með 11. febrúar um 1 prósentustig og kjörvexti óverðtryggðra skuldabréfa um 0,5 prósentustig. Kjörvextir eftir breytingu eru 9,25%. Vextir óverðtryggðra innlána lækka minna eða um 0,4 til 0,5 prósentustig. Vaxtabreytingin er til komin vegna lækkunar stýrivaxta Seðlabankans í lok janúar.