02.04.2014
Arion banki leiðandi í hlutabréfaviðskiptum í Kauphöll Íslands
Á fyrsta ársfjórðungi 2014 var Arion banki með mestu markaðshlutdeild markaðsaðila í viðskiptum með hlutabréf í Kauphöll Íslands (NASDAQ OMX Iceland hf.), með ríflega 31% markaðshlutdeild. Arion banki var því aðili að tæplega þriðjungi allrar hlutabréfaveltu í Kauphöllinni og er sú mikla markaðshlutdeild meðal annars til merkis um mikla fjölgun viðskiptavina bankans á sviði markaðsviðskipta.
Markaðurinn hefur stækkað undanfarin ár með tilkomu fleiri félaga í kauphöll, en margir áhugaverðir fjárfestingarkostir eru nú komnir á markað. Á árinu 2013 var meðalvelta með hlutabréf á dag í Kauphöllinni nærri einn milljarður króna – sem samsvarar um þreföldun frá árinu á undan.
Í viðskiptayfirliti frá Kauphöllinni kemur fram að viðskipti með hlutabréf á NASDAQ OMX Iceland á 1. fjórðungi ársins 2014 námu rúmum 152 milljörðum króna. Hækkun viðskiptamagns milli ára er 24% þannig að óhætt er að segja að áhugi á hlutabréfum hér á landi hafi aukist mikið milli ára.