22.05.2012
Arion banki leitar til viðskiptavina
Það er Arion banka mikið kappsmál að þjónusta viðskiptavini bankans eins vel og kostur er. Til að gera það framkvæmir bankinn meðal annars mælingar á ánægju viðskiptavina með ýmsa þætti þjónustunnar.
Nú hefur rafrænni þjónustukönnun verið hrint af stað þar sem 10.000 viðskiptavinir fá tækifæri á að svara stuttri könnun eftir að hafa skráð sig út úr netbanka Arion banka. Við hvetjum viðskiptavini til að taka þátt í könnuninni enda er afar mikilvægt fyrir bæði viðskiptavini og bankann að þátttakan sé góð. Hér gefst viðskiptavinum bankans tækifæri til að koma skoðunum sínum á framfæri og hafa þannig áhrif á þjónustuna. Niðurstöðurnar verða síðan nýttar til að bæta enn frekar þjónustu Arion banka.
Capacent Gallup sér um framkvæmd þjónustukönnunar og stendur hún yfir fram í byrjun júnímánaðar.