22.02.2013

Arion banki lýk­ur sínu fyrsta er­lenda skulda­bréfa­út­boði

Fyrr í dag lauk Arion banki skuldabréfaútboði í norskum krónum með milligöngu Pareto Öhman. Alls voru seld skuldabréf til um 60 fjárfesta í Noregi, Svíþjóð, Finnlandi, Bretlandi, meginlandi Evrópu og Asíu fyrir 500 milljónir norskra króna eða um 11,2 milljarða íslenskra króna. Umframeftirspurn var eftir bréfunum. Um er að ræða fyrstu erlendu fjármögnun bankans og fyrstu erlendu skuldabréfaútgáfu íslensks fjármálafyrirtækis frá árinu 2007. Bankinn réðst í aðdraganda útgáfunnar í umfangsmikla kynningarherferð og hefur hann á undanförnum mánuðum átt fundi með fjárfestum í Bandaríkjunum, Bretlandi, Þýskalandi og á Norðurlöndunum.

Stefnt er að því að taka skuldabréfin til viðskipta í kauphöll Noregs. Skuldabréfin bera fljótandi vexti, 5,00% ofan á NIBOR og eru til þriggja ára, með lokagjalddaga árið 2016.

Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka:

„Þetta er mikilvægt skref fyrir okkur og fyrsta skrefið í að opna erlenda markaði hvað fjármögnun bankans varðar. Ég held að óhætt sé að segja að þetta sé einnig áfangi í endurreisn íslensks efnahagslífs. En höfum í huga að þetta er aðeins eitt skref af mörgum í þá átt að greiða fyrir aðgangi íslenskra fyrirtækja að erlendu lánsfé.

Í úgáfunni felst viðurkenning á því starfi sem hér hefur verið unnið á undanförnum árum bæði innan bankans og utan. Nýleg hækkun á lánshæfismati Íslands og lyktir Icesave málsins höfðu hér áhrif en trú þessara fjárfesta á Arion banka og framtíð hans er auðvitað forsenda þátttöku þeirra í útboðinu. Þannig er vel heppnað skuldabréfaútboð bankans nú ekki síst afrakstur mikillar vinnu undanfarinna ára við uppbyggingu bankans.

Við höfum lagt mikla áherslu á að kynna Arion banka, stöðu hans og þróun, fyrir erlendum fjármálastofnunum og fjárfestum allt frá stofnun bankans. Aukinn kraftur var settur í þá vinnu á árinu 2012 og þá með fjármögnun í huga enda markmið okkar að auka fjölbreytni í fjármögnun bankans. Við höfum lagt áherslu á hreinskiptin samskipti og að byggja upp orðspor bankans og nú sjáum við ávinning þeirrar vinnu.“

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira