20.02.2012

Arion banki lýk­ur skulda­bréfa­út­boði

Arion banki hf. lauk á föstudag fyrsta útboði bankans á sértryggðum skuldabréfum. Í boði voru 2,5 milljarðar kr. að nafnvirði af skuldabréfaflokknum Arion CBI 34. Í heild bárust tilboð upp á samtals 8.680 milljónir kr. og því var umframeftirspurn ríflega 6 milljarðar.

Flokkurinn hefur verið skráður í kauphöllinni í Lúxemborg og stefnt er á að hann verði tekinn til viðskipta á Nasdaq OMX Íslandi þriðjudaginn 21. febrúar.

Skuldabréfin bera 3,60% verðtryggða vexti og eru á lokagjalddaga árið 2034 en með uppgreiðsluheimild frá og með árinu 2017.

Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka:
„Það er ánægjuefni að þetta fyrsta útboð bankans hafi fengið jákvæðar viðtökur hjá markaðnum. Ríflega þreföld eftirspurn sýnir trú á bankanum og því uppbyggingarstarfi sem hér hefur verið unnið á undanförnum árum. Það er mikilvægt fyrir okkur að auka fjölbreytni í fjármögnun bankans og er útboðið nú liður í því. Þetta gefur okkur byr í seglin fyrir framhaldið.“

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira