09.12.2011

Arion banki lýk­ur vel heppn­uðu út­boði

30% hlutur seldur á 4,9 milljarð króna eða á 13,5 kr./hlut

Almennu útboði á hlutabréfum í Högum hf. lauk klukkan 16.00 fimmtudaginn 8. desember síðast liðinn. Fyrirtækjaráðgjöf Fjárfestingabankasviðs Arion banka hf. hafði umsjón með útboðinu og fyrirhugaðri skráningu félagsins í Kauphöll nú í kjölfar útboðsins, en seljandi hlutanna er Eignabjarg ehf., dótturfélag bankans.

Endanleg stærð útboðsins nemur 30% af útgefnum hlutum Haga og endanlegt útboðsgengi er 13,5 krónur á hlut til allra kaupenda í útboðinu sem eru um 3.000 talsins. Heildarsöluandvirði útboðsins nemur 4.931 milljón króna, en samtals eru 365.275.752 hlutir seldir í útboðinu.

Um 12,5% af útgefnum hlutum Haga var úthlutað til fjárfesta sem skráðu sig fyrir kaupum að andvirði 0,1-25 milljónum króna og var hverjum aðila úthlutað hlutabréfum að andvirði um 0,1-1,5 milljónum króna. Um 17,5% af útgefnum hlutum Haga var úthlutað til fjárfesta sem skráðu sig fyrir kaupum að andvirði 25-500 milljónum króna og var hverjum aðila úthlutað hlutabréfum að andvirði um 1,5-90 milljónum króna.

Eindagi kaupverðs hlutanna er miðvikudaginn 14. desember næstkomandi

Eftir eindaga geta fjárfestar ekki innt af hendi greiðslu kaupverðsins, nema seljandi ákveði að grípa til innheimtu.

Kauphöllin mun tilkynna um fyrsta viðskiptadag á Aðalmarkaði NASDAQ OMX Iceland með minnst eins viðskiptadags fyrirvara.

Eftirspurn og úthlutun

Í útboðinu bárust gild tilboð um kaup fyrir alls um 40 milljarða króna og voru um 95% þeirra gerð á genginu 13,5 kr./hlut eða með samþykki um hvaða gengi sem yrði ákveðið á bilinu 11-13,5 kr./hlut. Ákvörðun seljanda um endanlega stærð útboðs, verð, skiptingu og úthlutun tók mið af fjárhæð og gengi áskrifta frá fjárfestum, eðli og stærð fjárfesta, markmiðum og skilmálum útboðsins sem gerð var grein fyrir í lýsingu Haga dagsettri 26. nóvember 2011. Markmið seljandans var að útboðið markaði grunninn að dreifðu eignarhaldi almennings og fagfjárfesta á Högum, auk þess að fá ásættanlegt verð fyrir eign sína.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira