23.09.2014

Arion banki með bás á „Ís­lensku sjáv­ar­út­vegs­sýningunni“

Íslenska sjávarútvegssýningin fer fram í Smáranum í Kópavogi dagana 25. – 27. September. Arion banki verður með bás á staðnum þar sem starfsmenn bankans sem sinna viðskiptavinum í sjávarútvegi munu standa vaktina og taka á móti gestum.

Sýningin verður opin frá klukkan 10 til 18 fimmtudag og föstudag og frá klukkan 10 til 16 laugardag.

Íslenska sjávarútvegssýningin er haldin þriðja hvert ár og hefur hún ávallt fengið góða aðsókn. Árið 2011 sóttu til að mynda tæplega 14 þúsund gestir sýninguna frá 52 löndum en gert er ráð fyrir því að fleiri sæki sýninguna í ár. Gríðarlega góð stemning hefur verið á sjávarútvegssýningunni og er ávallt mikið lagt í básana.

Við hvetjum alla til að líta við á sýningunni. Aðgangseyrir er 3.500 krónur fyrir 6 ára og eldri.

Nánari upplýsingar um sýninguna má finna á vef hennar, www.icefish.is.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira