16.10.2012
Arion banki meðal stofnaðila að klasasamstarfi íslensku ferðaþjónustunnar
Þann 9. október sl. var haldinn upphafsfundur í klasasamstarfi innan íslensku ferðaþjónustunnar í Norræna húsinu í Reykjavík. Arion banki, auk yfir 40 aðila, undirritaði þjónustusamning til eins árs við fyrirtækið Gekon um framkvæmd og verkstjórn á kortlagningu atvinnugreinarinnar í anda klasaaðferðafræði dr. Michael Porter.
Meðal þeirra sem gerðust stofnaðilar að samstarfinu eru mörg lykilfyrirtæki á sviði ferðaþjónstu, opinberir aðilar og fyrirtæki sem styðja við eða eiga samstarf við ferðaþjónustuna. Eitt helsta markmið samstarfsins er að auka samkeppnishæfni og verðmætasköpun innan íslensku ferðaþjónustunnar.
Fundurinn í Norræna húsinu var fjölsóttur og bar vott um mikinn áhuga á að nota aðferðir klasastjórnunnar í þágu ferðaþjónustunnar. Fjögur erindi voru flutt. Hákon Gunnarsson framkvæmdastjóri Gekon fjallaði um klasastjórnun, dr. Eyþór Ívar Jónsson framkvæmdastjóri Klak, nýsköpunarmiðstöðvunar atvinnulífsins, fjallaði um klasasamstarf sem verkfæri til nýsköpunar í atvinnulífinu, Ingibjörg Guðjónsdóttir frá Íslenskum fjallaleiðsögumönnum og SAF gerði grein fyrir væntingum ferðaþjónustunnar til verkefnisins og Rósbjörg Jónsdóttir frá Gekon fór yfir verkáætlun og markmið verkefnisins.
Nánari upplýsingar um verkefnið má nálgast á www.gekon.is.