23.11.2009

Arion banki mót­tek­ur til­boð um fjárhags­lega endur­skipulagningu 1998

Arion banki hefur móttekið tilboð frá Jóhannesi Jónssyni kaupmanni, erlendum fjárfestum og stjórnendum Haga um fjárhagslega endurskipulagningu 1998 ehf., móðurfélags Haga. Samkvæmt tilboðinu kemur ekki til neinna afskrifta skulda 1998 ehf.

Arion banki þarf að taka sér tíma til að meta tilboðið og bera saman við aðra kosti í stöðunni þar sem málið er flókið. Það er í samræmi við þá meginreglu bankans að leita lausna á skuldavanda fyrirtækja með eigendum og stjórnendum. Niðurstöðu varðandi tilboðið er að vænta um miðjan janúar.

Starfsfólk bankans áréttar að í þessu máli er unnið eftir verklagsreglum bankans sem eru í samræmi við lög um aðgerðir í þágu einstaklinga, heimila og fyrirtækja vegna banka- og gjaldeyrishrunsins, sem nýverið voru samþykkt á Alþingi.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira