01.06.2011

Arion banki náði mark­mið­um Beinu braut­ar­innar

Gerði öllum fyrirtækjum tilboð fyrir 1. júní

Samkvæmt samkomulagi við ríki og atvinnulíf áttu íslensk fjármálafyrirtæki að ná því markmiði að gera litlum og meðalstórum fyrirtækjum tilboð um úrlausn skuldavanda þeirra fyrir 1. júní 2011. Arion banki hefur nú náð því markmiði.

Undanfarna mánuði hefur verið unnið ötullega að því innan bankans að leysa úr skuldavanda þeirra 470 fyrirtækja sem falla undir samkomulagið af hálfu bankans. Öllum þessum fyrirtækjum hafa nú verið gerð tilboð. Málum 320 fyrirtækjanna er að fullu lokið. Þau 150 fyrirtæki sem eftir standa eiga eftir að taka afstöðu til tilboðs bankans.

Þessu til viðbótar hafa fjölmörg fyrirtæki, sem ekki falla undir samkomulag Beinu brautarinnar, farið í gegnum úrlausnarferli Arion banka. Þannig er komin niðurstaða í úrlausnarmál rúmlega 700 fyrirtækja og mál 250 fyrirtækja til viðbótar eru vel á veg komin. Alls hafa því um 950 af þeim 1.000 fyrirtækjum, sem þurfa á fjárhagslegri endurskipulagningu að halda, hafið úrlausnarferlið.

Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka:
„Við höfum lagt höfuðáherslu á að ljúka fjárhagslegri endurskipulagningu fyrirtækja og einstaklinga eins fljótt og auðið er. Fjöldi starfsmanna hefur unnið að þessum málum svo hægt væri að gera þessum 470 fyrirtækjum tilboð fyrir 1. júní eins og samkomulagið um Beinu brautina kveður á um. Reyndar er komin niðurstaða í úrlausnarmál rúmlega 700 fyrirtækja. Það er mikilvægt því það skipir okkur öll máli að óvissu varðandi skuldastöðu heimila og fyrirtækja sé eytt sem fyrst. Að því vinnum við hörðum höndum. Við erum sem betur fer það langt komin, að við getum í ríkari mæli horft fram á veginn og unnið með viðskiptavinum okkar að málum sem skipta þá máli.“

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira