20.11.2009

Arion banki - nýtt nafn og ný sýn

Frá og með morgundeginum, 21. nóvember 2009, mun Nýi Kaupþing banki skipta um nafn og heita Arion banki. Nýju nafni fylgir ný stefna og gildi. Með nýjum áherslum er verið svara kröfum viðskiptavina og starfsmanna um breytingar í kjölfar endurskipulagningar bankans sem gerð var vegna hins mikla umróts sem hefur orðið í íslensku og alþjóðlegu efnahagsumhverfi. Nýtt nafn mun auk þess koma í veg fyrir misskilning bæði í almennri umræðu og meðal innlendra og erlendra samstarfsaðila bankans.

Leiðarljós bankans eru fagmennska, framsækni, umhyggja og tryggð þar sem viðskiptavinurinn er í forgrunni. Nýja nafnið er sótt í grískar fornsögur og vísar m.a. til þrautseigju, samvinnu og endurkomu. Efnt var til samkeppni um nýtt nafn meðal starfsmanna bankans og var nafnið valið úr á þriðja hundrað tillagna.

Finnur Sveinbjörnsson, bankastjóri Arion banka, segir breytingarnar tímabærar: ,,Nýtt nafn, stefna og gildi marka nýtt upphaf hjá bankanum, við erum á vissan hátt að segja skilið við hið gamla og ætlum að takast á við þær áskoranir sem eru í samfélaginu af fullum krafti. Markmiðið er að byggja upp traustan, öflugan banka sem vinnur með og fyrir fólkið í landinu.”

Bankanum ber að sýna aðhald og ráðdeild eins og önnur fyrirtæki og heimili í landinu. Þess vegna verður kostnaði vegna breytinganna haldið í lágmarki. Ásýnd útibúa mun taka breytingum á næstu vikum og endurnýjun á markaðsefni verður unnin á meðan eldri birgðir klárast. Eðlileg endurnýjun er því látin koma í veg fyrir óþarfa tilkostnað.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira