25.02.2015

Arion banki og DNB Bank fjármagna kaup HB Granda á upp­sjáv­ar­skip­um

HB Grandi hefur samið við Arion banka og DNB Bank um fjármögnun á smíði tveggja uppsjávarskipa sem áætlað er að verði afhent á árinu 2015, en HB Grandi gerði nýverið samning við tyrknesku skipasmíðastöðina Celiktrans Deniz Insaat Ltd. um smíði skipanna. Nýju skipin munu lækka meðalaldur skipaflota HB Granda úr 33 árum í 23.

Samningarnir taka til langtíma fjármögnunar skipanna og endurfjármögnunar á eldri langtímalánum HB Granda. Lánveitingin nú nemur 77 milljónum evra eða um 11,5 milljörðum króna.

Þetta er í fyrsta skipti sem Arion banki og DNB Bank vinna saman að fjármögnun fjárfestinga í íslenskum sjávarútvegi, en samvinna bankanna í þessu verkefni leiðir til lækkunar á vaxtakjörum HB Granda.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira