06.03.2013
Arion banki og endurnýjanleg orka
Nú fer fram ráðstefna á sviði jarðvarma undir nafninu Iceland Geothermal Conference 2013 og stendur hún til 8. mars í Hörpu í Reykjavík. Íslenski jarðvarmaklasinn, Iceland Geothermal, stendur fyrir ráðstefnunni en Arion banki er einn af stofnaðilum klasans og styrktaraðili ráðstefnunnar. Um er að ræða eina viðamestu ráðstefnu sem haldin hefur verið hérlendis um jarðvarma.
Stefán Pétursson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Arion banka og meðlimur í fagráði Iceland Geothermal, mun stýra einni málstofunni en dagskrá ráðstefnunnar er afar fjölbreytt þar sem flutt verða 55 erindi og koma fyrirlesarar alls staðar að úr heiminum.
Arion banki verður með kynningarbás á ráðstefnunni um aðkomu bankans að klasasamstarfinu og kynningu á fulltrúum orkuteymis bankans. Við hvetjum ráðstefnugesti til þess að koma við á básnum og hitta starfsfólk okkar.
Hér má svo lesa grein eftir Svein Björnsson, forstöðumann á fyrirtækjasviði, sem birtist í Iðnaðarblaðinu í vikunni um mikilvægi fjármálaráðgjafar í orkuverkefnum.