05.08.2010
Arion banki og Ferðafélag barnanna
Arion banki hefur skrifað undir samning þess efnis að bankinn haldi áfram að vera helsti styrktaraðili Ferðafélags barnanna. Félagið var stofnað árið 2009 með það fyrir augum að hlúa að heilbrigði og virkni allra barna og fjölskyldna.
Áhersla er lögð á að bjóða upp á ferðir og uppákomur fyrir börnin til að víkka sjóndeildarhring þeirra og er markmiðið að fá öll börn til að upplifa sanna gleði í náttúrunni og leyndardóma umhverfisins.
Arion banki er stoltur bakhjarl Ferðafélags barnanna.
Fjölskyldudagur í Heiðmörk laugardaginn 7. ágúst
Ferðafélag barnanna og Arion banki standa fyrir frábærri fjölskylduhátíð í Heiðmörk laugardaginn 7. ágúst þar sem börnin fá tækifæri til að upplifa töfra náttúrunnar og kynnast þessu stórkostlega útivistarsvæði í nágrenni höfuðborgarsvæðisins.
Dagskráin hefst kl. 14 í Þjóðhátíðarlundinum í Heiðmörk. Þátttaka er ókeypis og allir eru velkomnir.
Allir krakkar fá glaðning frá Arion banka
Ingó úr Veðurguðunum kemur öllum í stuð
Íþróttakennarar stjórna skemmtilegum leikjum
Girnilegur grænmetismarkaður
Fjölbreyttar gönguferðir með fararstjórum Ferðafélags Íslands
Skemmtilegur ratleikur
Íslandsmeistaramótið í gúrkuáti
Arion banki gefur öllum þeim börnum, sem skrá sig í Ferðafélag barnanna á fjölskyldudeginum, frítt árgjald.
Nánari upplýsingar um starf Ferðafélags barnanna má finna á heimasíðu Ferðafélags Íslands, www.fi.is.