18.12.2014

Arion banki og Sam­keppnis­eftir­lit­ið gera sátt um greiðslu­kor­ta­kerfið

- Arion banki kaupir 38% hlut Landsbankans í Valitor, dótturfélagi Arion banka

Arion banki og Samkeppniseftirlitið hafa undirritað sátt sem snýr að uppsetningu greiðslukortakerfisins, en kerfið var sett upp fyrir rúmum 30 árum að evrópskri fyrirmynd. Tímabilið sem til skoðunar var er frá 2007 til og með 2009. Kjarninn í sátt Arion banka og Samkeppniseftirlitsins felst í breytingum á ákvörðun svokallaðra milligjalda sem færsluhirðar greiða bönkum, ásamt nýrri tilhögun á veitingu vildarpunkta. Einnig felst í sáttinni að gerðar verði breytingar á eignarhaldi kortafyrirtækja og að Arion banki greiði 450 milljónir króna í sekt.

Arion banki hefur þegar gert umsamdar breytingar
Arion banki hefur þegar breytt samningum við Valitor sem endurspegla nú breytt fyrirkomulag og ákvarðast milligjöld í tvíhliða samningum milli félaganna. Arion banki hefur einnig breytt fyrirkomulagi samninga varðandi vildarpunkta. Þannig hefur Arion banki þegar brugðist við gagnrýni Samkeppniseftirlitsins og gert breytingar á viðskiptasamningum sínum.

Arion banki kaupir 38% hlut Landsbankans í Valitor
Að auki hefur Arion banki hf. undirritað kaupsamning við Landsbankann hf. um kaup á 38% hlut Landsbankans í Valitor Holding hf, móðurfélagi Valitor hf. Kaupverð er 3,6 milljarðar króna. Mögulega mun síðar koma til viðbótargreiðslu af hálfu Arion banka í tengslum við valrétt Visa Europe á hendur Visa Inc. Ákvörðun um nýtingu valréttarins er ekki á höndum Arion banka heldur Visa Europe og því óvíst hvort, hvenær og þá hve há slík greiðsla gæti orðið.

Eftir kaupin á Arion banki um 98% í Valitor Holding hf. en Landsbankinn fer alfarið úr eigendahópi félagsins.

Valitor mikilvægur þáttur í stefnu og framtíðarsýn Arion banka
Valitor hefur verið dótturfélag Arion banka til margra ára og er mikilvægur þáttur í starfsemi bankans, stefnu og framtíðarsýn. Arion banki leggur mikla áherslu á öflugt þjónustuframboð þegar kemur að greiðslukortum og mun áfram leggja höfuðáherslu á VISA-kort, til viðbótar við kort frá Mastercard, hvort tveggja í samstarfi við Valitor.

Arion banki hefur mikla trú á Valitor sem hefur verið drifkraftur í uppbyggingu öflugs og trausts greiðslukortakerfis hér á landi. Að auki hefur Valitor haslað sér völl á erlendum vettvangi og eru því spennandi tímar framundan hjá félaginu.

Sambærilegar kerfisbreytingar erlendis – sektum almennt ekki beitt
Greiðslukortakerfið hér á landi var byggt upp að evrópskri fyrirmynd fyrir um 30 árum. Fyrirkomulag þess hefur legið ljóst fyrir frá upphafi og hefur tilhögun milligjalda ekki sætt formlegri gagrýni frá yfirvöldum fyrr en nú. Samkeppnisyfirvöld í mörgum ríkjum eru að ljúka málum með sambærilegum hætti og hér á landi, þ.e. varðandi breytingar á greiðslukortakerfum og lækkun milligjalda. Þá hefur Evrópusambandið lagt fram tillögur sem miða að því að sett verði hámark á milligjaldið. Arion banki hefur skilning á þeirri gagnrýni sem hefur komið fram varðandi tilhögun kerfisins. Kerfið er að ýmsu leyti barn síns tíma og hefur margt breyst frá því það var sett upp hvað varðar tækni, útbreiðslu kortanna og stærð þeirra fyrirtækja sem að þeim standa.

Hér á landi unnu þeir sem að kerfinu koma, í bönkum og kortafyrirtækjum, í góðri trú og töldu sig starfa í samræmi við lög og reglur og hefði Arion banki kosið að semja um breytingar á kerfinu án þess að til kæmi sekt. Þess var vænst að svo gæti orðið þegar bankinn hóf að eigin frumkvæði sáttaviðræður við Samkeppniseftirlitið en það gekk ekki eftir. Málalyktir hér á landi hvað þetta varðar eru því ólíkar því sem raunin hefur orðið á víðast í Evrópu þar sem aðilar hafa orðið ásáttir um að gera að mörgu leyti sambærilegar breytingar á greiðslukortakerfinu, án þess að til sekta komi.

Íslenska greiðslukortakerfið skilvirt og hefur náð mikilli útbreiðslu
Greiðslukortakerfið á Íslandi hefur náð mikilli útbreiðslu og þróast farsællega. Hér á landi fara um 80% af veltu í gegnum greiðslukort sem er til muna hærra hlutfall en í öðrum löndum. Ástæðan er sú að hér á landi hefur tekist að þróa einfalt, öflugt og skilvirkt kerfi þar sem greiðslukort eru tekin hjá svo gott sem öllum sölu- og þjónustuaðilum. Hér á landi tíðkast t.a.m. ekki að leggja sérstakt álag á reikninga ef greitt með kreditkorti eins og sumstaðar erlendis. Kostnaður neytandans er almennt innifalinn í vöruverði á sama hátt og kostnaður vegna umsýslu með seðla og mynt. Hér á landi nýtur korthafinn líka vaxtalauss veltuláns í allt að 40 daga. Mikill sveigjanleiki í íslenska kerfinu gagnast líka kaupmönnum – sérstök kortatímabil dreifa álaginu á verslanir. Öryggismál eru almennt í mjög góðu lagi, bæði fyrir sölu- og þjónustuaðila sem og neytendur.

Sátt um skipan greiðslukortakerfisins
Með þeim breytingum sem nú hafa verið gerðar á milligjöldum, vildarpunktum og eignarhaldi kortafyrirtækja hefur náðst sátt um skipan greiðslukortakerfisins hér á landi.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira