05.03.2010
Arion banki og starfsmenn styrkja átakið Karlmenn og krabbamein
Arion banki er styrktaraðili átaksins Karlmenn og krabbamein sem Krabbameinsfélag Íslands stendur fyrir dagana 1. – 26. mars.
Bankinn hefur fest kaup á barmmerkjum, skeggnælum, til styrktar átakinu fyrir starfsmenn bankans og hvatt þá til að bera merkið til að vekja athygli á góðu málefni. Karlkyns starfsmenn eru einnig hvattir til að taka þátt í áskorun Krabbameinsfélagsins „mottumars“ og safna yfirvaraskeggi meðan á átakinu stendur.
Nú þegar hafa starfsmenn bankans stofnað lið, Arion banki – Mottusöfnun, á vefsíðunni Karlmenn og krabbamein til að safna áheitum og sýna samstöðu. Hægt er að heita á einstaklinga og lið, auk þess að fá nánari upplýsingar um átakið á vef Krabbameinsfélagsins.