16.06.2011
Arion banki selur 10-11
Undirritaður hefur verið samningur um sölu á Rekstrarfélagi Tíu-ellefu ehf. frá Eignabjargi ehf., dótturfélagi Arion banka, til félags í eigu Árna Péturs Jónssonar.
Í tilkynningu sem Arion banki sendi frá sér þann 28. apríl síðastliðinn og í auglýsingum sem birtar voru í kjölfarið, var Rekstrarfélag Tíu-ellefu auglýst til sölu. Í kjölfar kynningar á félaginu var kallað eftir tilboðum frá áhugasömum fjárfestum og á þeim grundvelli var ákveðið að ganga til viðræðna við fyrrgreindan aðila sem átti hagstæðasta tilboðið. Þeim viðræðum er nú lokið með undirritun samnings um kaup Árna Péturs Jónssonar á Rekstrarfélagi Tíu-ellefu. Gert er ráð fyrir að nýr eigandi taki við rekstri félagsins fyrir lok þessa mánaðar.