05.10.2011

Arion banki sel­ur B.M. Vallá ehf.

Undirritaður hefur verið samningur um sölu á B.M. Vallá ehf. frá Eignabjargi ehf., dótturfélagi Arion banka, til BMV Holding ehf. félags í eigu erlendra og íslenskra fjárfesta.

Hluthafar BMV Holding eru Norcem á Íslandi ehf., Björgun ehf., Jarðefnaiðnaður ehf., Suðurhraun ehf., Hlér ehf., Harðbakur ehf. og Suðurverk hf. Markmið nýrra eigenda B.M. Vallá er að viðhalda leiðandi stöðu félagsins á íslenskum byggingamarkaði.

Í tilkynningu sem Arion banki sendi frá sér þann 31. mars síðastliðinn og í auglýsingum sem birtar voru í kjölfarið, var B.M. Vallá auglýst til sölu. Í kjölfar kynningar á félaginu var kallað eftir tilboðum frá áhugasömum fjárfestum og á þeim grundvelli var ákveðið að ganga til viðræðna við fyrrgreinda aðila, sem áttu hagstæðasta tilboðið. Þeim viðræðum er nú lokið með undirritun samnings um kaup þeirra á B.M. Vallá. Samningurinn er gerður með fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira