04.07.2012
Arion banki selur Boyfood Oy dótturfélag Fram Foods ehf.
Fram Foods ehf. hefur í dag selt dótturfélags sitt Boyfood Oy í Finnlandi til finnska félagsins Felix Abba Oy. Á árinu 2011 námu tekjur Boyfood um 18 milljónum evra en hjá félaginu starfa um 56 manns. Heildarvirði viðskiptanna nemur 9,6 milljónum evra.
Boyfood er rótgróið fyrirtæki sem sérhæfir sig í framleiðslu og sölu á kældum sjávarafurðum. Félagið framleiðir síldarafurðir undir sínu eigin vörumerki Boy og vörumerkjum samstarfsaðila. Afurðir félagsins eru seldar til stærstu verslunarkeðja Skandinavíu.
Fram Foods ehf. er að fullu í eigu Eignabjargs ehf., dótturfélags Arion banka hf. Fyrirtækjaráðgjöf Arion banka hf. sá um söluferlið. Unnið er að sölu annarra dótturfélaga Fram Foods ehf.