01.11.2012
Arion banki selur dótturfélag Fram Foods í Svíþjóð
Fram Foods ehf. hefur selt dótturfélag sitt Fram Foods AB í Svíþjóð til sænska félagsins Domstein Sverige AB, en bæði félögin eru með höfuðstöðvar í Lysekil í Svíþjóð. Fyrirtækjaráðgjöf Arion banka hf. sá um söluferlið. Við kaupin greiðir Domstein Sverige AB hálfa milljón evra fyrir allt hlutafé félagsins. Á árinu 2011 námu tekjur Fram Foods AB um 18 milljónum evra en hjá félaginu starfa rúmlega 50 manns. Fram Foods AB er rótgróið fyrirtæki sem sérhæfir sig í framleiðslu og sölu á kældum sjávarafurðum undir eigin vörumerkjum sem og vörumerkjum samstarfsaðila. Afurðir félagsins eru seldar til stærstu verslunarkeðja í Svíþjóð.
Fram Foods ehf. er að fullu í eigu Eignabjargs ehf., dótturfélags Arion banka hf.