02.02.2011
Arion banki selur HEKLU
Undirritaður hefur verið samningur um sölu á bifreiðaumboðinu Heklu ehf. frá Arion banka til Friðberts Friðbertssonar og Franz Jezorski.
Í tilkynningu sem Arion banki sendi frá sér þann 16. september síðastliðinn og í auglýsingum sem birtar voru í kjölfarið, var bifreiðaumboðið Hekla auglýst til sölu. Tólf tilboð bárust bankanum og héldu fimm tilboðsgjafar áfram í söluferlinu. Hinn 27. desember síðastliðinn ákvað Arion banki í samstarfi við Volkswagen í Þýskalandi að ganga til formlegra samningaviðræðna við fyrrgreinda aðila. Þeim viðræðum er nú er lokið með undirritun samnings um kaup þeirra á Heklu. Jafnframt er fjárhagslegri endurskipulagningu félagsins lokið. Gert er ráð fyrir að nýir eigendur taki við rekstri félagsins 9. febrúar næstkomandi.