16.01.2015

Arion banki sem­ur við MP banka um viðskipta­vakt með sér­tryggð skulda­bréf Arion banka

Arion banki hf. hefur samið við MP banka hf. um að annast viðskiptavakt með sértryggð skuldabréf, útgefnum af Arion banka hf., sem eru í viðskiptum í Kauphöll Íslands (ARION CB 15, ARION CBI 19, ARION CBI 21, ARION CBI 29, ARION CBI 34).

Helstu skilmálar samningsins eru eftirfarandi:

Fjárhæð kaup- og sölutilboða skal að lágmarki nema kr. 20.000.000 að nafnvirði. Hámarksmunur á kaup- og sölutilboðum viðskiptavaka ákvarðast af lokagjalddaga bréfanna í þeim flokkum sem viðskiptavakt tekur til. Viðskiptavaki skal endurnýja tilboð innan 15 mínútna eftir að þeim er tekið eða þau felld niður. Hámarksfjárhæð heildarviðskipta sem viðskiptavaka er skylt að eiga í einstökum skuldabréfaflokki er samtals kr. 60.000.000 að nafnvirði dag hvern.

Viðskiptavakt MP banka hf. tekur gildi 16. janúar 2015 og er samningurinn ótímabundinn en uppsegjanlegur með 30 daga fyrirvara eða eftir samkomulagi hverju sinni.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira